Hvaða strumpur ert þú? – Nordexcel vinnustofa

Snjallar vinnustofur · Nordexcel

Hvaða strumpur
ert þú?

Vinnustofa um vald, hlutverk og sjálfstæði í teymum

2 klst Að hámarki 15 þátttakendur Á staðnum eða online
Bókaðu vinnustofuna

250.000 kr + VSK fyrir teymi

"Gáfnastrumpur notaði seiði til að fá alla til að hlýða.
Það gekk ágætlega — þar til teymið fór að hlýða líka Stórmunninum."

Við erum öll einhvers konar strumpur. Einhver talar of mikið. Einhver bíður alltaf eftir leyfi. Einhver tekur ákvörðun fyrir alla — og allir láta það viðgangast.

Spurningin er ekki hvort þetta gerist hjá ykkur. Spurningin er hvernig og hvað má bæta.

Í þessari vinnustofu finnum við það út — með hlátri, heiðarleika og eitthvað sem teymið getur byrjað að nota strax.

Þessi vinnustofa er fyrir þig ef…

🏃
Teymið er að vaxa
Hlutverk eru að verða óskýrari og einhver er alltaf að bíða eftir einhverjum öðrum.
🔁
Ákvarðanir taka of langan tíma
Allt þarf að fara í gegnum einn mann — eða einn fund — áður en eitthvað getur gerst.
🤫
Það er ekki virkt umbótastarf
Góðar hugmyndir fara aldrei lengra en í kaffispjallið. Enginn vill vera sá sem segir frá tækifærum eða áskorunum.
🎯
Þið viljið vinna betur saman
Teymið er gott — en það gæti verið mun betra. Þið viljið teymisvinnustofu sem skilar eitthvað raunverulegu.

Hvað gerist í vinnustofunni?

  1. 01
    Kveikjan — við horfum á Strumpana
    Við skoðum klassískt brot úr Strumpunum þar sem Gáfnastrumpur notar seiðið sitt. Allir hlæja. Og svo kemur spurningin: þekkjum við þetta?
    15 mín
  2. 02
    Sjálfsmatið — hvaða strumpur ert þú?
    Allir fylla út stutt sjálfsmat. Við skoðum niðurstöðurnar - skemmtilegt og heiðarlegt. Hverjir taka ákvarðanir? Hverjir bíða eftir leyfi? Hverjir sjá vandann en segja ekkert?
    25 mín
  3. 03
    Umræðurnar — hvað virkar ekki?
    Opin umræða í teyminu. Við notum Miro og styðjumst við rannsóknir á afburðafyrirtækjum - Hvað kostar okkur mest? Hvar tapast tíminn? Hvernig getum við unnið skipulega með umbætur
    25 mín
  4. 04
    Miðavinna — hvað má bæta?
    Allir vinna í Miro.
    20 mín
  5. 05
    Lokaniðurstaða — þrjár leiðir til að auka sjálfræði og árangur
    Teymið skilgreinir þrjár breytingar sem er hægt að framkvæma strax. Þetta eru breytingar á daglegum vinnubrögðum — ekki stefna, ekki skjöl, bara framkvæmd.
    15 mín

Hvað ferðu með heim?

  • Skýrari mynd af því hvernig vald og hlutverk skiptast í teyminu
  • Sameiginleg skilningur á því hvað má bæta
  • Miro-borð með niðurstöðum teymisins
  • Þrjár breytingar til að auka sjálfræði og skýra ábyrgð
  • Teymisdagur sem allir muna — og geta vísað í seinna
  • Engar skýrslur. Bara einfaldar og árangursríkar breytingar.

Á staðnum eða online — þú velur

Á staðnum
Onsite
Ég kem til ykkar - eða við hittumst á góðum stað í burtu frá vinnustaðnum. Hentar vel fyrir teymisdaga og stefnumörkunardaga.
Á netinu
Online
Vinnustofan fer fram á Teams með Miro í aðalhlutverki. Hentar vel fyrir dreifð teymi eða þegar tíminn er knappur Sama efni, sömu gæði — aðeins minni ferðatími.
[ Mynd ]

Agnes Hólm Gunnarsdóttir

Höfundur · Ráðgjafi · Leiðbeinandi

Ég er iðnaðarverkfræðingur og stjórnunarráðgjafi með áratuga reynslu af skipulagsþróun í íslenskum fyrirtækjum. Ég hef skrifað tvær bækur um stjórnun og þróað F ramma líkan Nordexcel - byggt á áratuga Excellence rannsóknum.

Ég brenn fyrir nútíma stjórnunarháttum — og hef séð og lært af eigin raun hvað virkar og hvað virkar ekki þegar kemur að því að fá teymi til að vinna vel saman.

Í vinnustofum er gleði og praktík í fyrirrúmi. Þú ferð ekki heim með glæur - heldur sameiginlegan skilning og einfaldar aðgerðir.

Excellence Sjö-F rammi Miro Teymisþróun Stjórnunarkerfi

Fast pakkaverð fyrir teymið þitt

Vinnustofa · 2 klukkustundir

250.000

kr + VSK · Fast verð fyrir teymið

  • 2 klukkustunda vinnustofa með leiðbeinanda
  • Miro-borð sérsniðið að teyminu
  • Sjálfsmat og hópagreining
  • Þrjár umbótaaðgerðir
  • Skýrsla með niðurstöðum
  • Á staðnum eða online — þú velur

Að hámarki 15 þátttakendur · Bókunin er staðfest með staðfestingarpósti

Hvernig strumpur
ert þú í raun?

Finndu það út — með gleði og opnum samskiptum.