Skýr rammi.
Dreifð ábyrgð.
Raunverulegar umbætur.
Afburðakerfið færir stjórnun fyrirtækisins úr Excel og Sharepoint inn í lifandi kerfi sem fólk notar daglega - skýr markmið, dreifð ábyrgð og raunverulegar umbætur.
Þú átt stjórnunarkerfi.
En enginn notar það.
Þetta er staðan í of mörgum íslenskum fyrirtækjum: verklag sem enginn finnur, fundir sem skila litlu, og umbætur sem komast aldrei af teikniborðinu. Þú þarft ekki meiri flækju. Þú þarft einfaldleika og skýrari stjórnun.
Ekki fleiri kerfi.
Heldur skýrari stjórnun.
Afburðakerfið er heildrænt stjórnkerfi sem sameinar stefnu, ferli og umbætur í einn lifandi takt — byggt á sjö stoðum og lifir í verkfærunum þínum, ekki í skúffu. Vottun er valfrjáls; kerfið skapar verðmæti hvort sem þú stefnir á ISO eða ekki.
Stjórnun er taktur,
ekki röð aðgerða.
Fimm fundir sem halda fyrirtækinu á réttri leið — frá daglegu spjalli upp í árlega stefnu.
Áttaviti er naflinn — mánaðarlegi stjórnendafundurinn. Við förum dýpra í hvern takt í vinnustofunni og innleiðingunni.
Allt sem skiptir máli í sjö stoðum.
Afburðakerfið hvílir á sjö stoðum — F-in sjö. Saman ná þær yfir allt sem þarf til að stjórna fyrirtæki vel: frá stefnu til framkvæmdar til árangurs.
Aðferðin kemur ekki úr lausu lofti.
Ég eyddi nokkrum árum í að rýna rannsóknir um afburðastjórnun og árangursríkar leiðir í fyrirtækjarekstri. Úr því varð bók og úr bókinni varð fræðslan sem ég kenni í dag.
Afburðastjórnun
Yfirgripsmikil bók um árangursríkar stjórnunarkenningar og stjórnunaraðferðir í fyrirtækjarekstri: hvað afburðastjórnun felur í sér, hvernig afburðaárangur er skilgreindur, og hvaða fyrirtæki geta kallast afburðafyrirtæki.
Með fjölmörgum dæmum úr íslensku viðskiptalífi — því kenningar sem virka í Bandaríkjunum þurfa ekki að virka hér.
Kaupa hjá Forlaginu →Einnig höfundur Afburðaárangurs — báðar skrifaðar með Helga Þór Ingasyni.
Námskeið fyrir stjórnendur
Hvernig stefna verður að daglegri vinnu — skipulega, ekki með óskhyggju. Byggt á sjö stoðunum og taktinum, með dæmum sem eiga við þinn rekstur.
Vinnustofur fyrir verkefnastjóra
Praktísk þjálfun sem gerir góða verkefnastjóra betri. Byggt á reynslu úr stóriðju, verkfræðistofum og UT — og alþjóðlegum stöðlum í verkefnastjórnun.
Allt sérsniðið. Ég byggi hvert námskeið og hverja vinnustofu utan um ykkar rekstur, ykkar áskoranir og ykkar fólk - ekki staðlað efni af hillunni.
Þetta virkar í alvöru rekstri.
Ég vinn með íslenskum fyrirtækjum í ólíkum atvinnugreinum sem vilja einfalda og árangursríka stjórnun - frá lyfjafyritækjum til gagnavera og orkufyrirtækja. Hér er hvað þau segja.
Agnes hjálpaði okkur að byggja upp samþætt stjórnkerfi sem þjónar rekstrinum — ekki öfugt. Við stóðumst einnig forvottun fyrir ISO 9001, 14001 og 27001, allt á sama tíma.
Agnes er ótrúlega skipulögð, framsýn og kemur alltaf til leiks með gleðina. Hún hefur einstakt lag á að einfalda flókin mál og tengja ólíka aðila í árangursríka samvinnu, sem skiptir sköpum í metnaðarfullum og flóknum verkefnum.
Þrjár leiðir inn í kerfið.
Hvar sem þú stendur — að kanna, byggja upp, eða styrkja það sem fyrir er — þá er leið inn. Allar leiðir leiða í sama Afburðakerfi. Verð ræðst af umfangi; þú færð tilboð í samræmi við þínar þarfir.
Sjö stoðir — staðan ykkar
Hálfsdags vinnustofa þar sem stjórnendateymið kortleggur fyrirtækið á sjö F-stoðum og fer dýpra á þeirri sem er veikust. Afhent: Gróf verkefnisáætlun og samantektarskýrsla af núverandi stöðu.
Sjá nánar →Afburðakerfið — full innleiðing
Heildræn uppbygging stjórnkerfis: Stjörnukort, Taktur, kjarnaverklag og stoðferli. Rekstur og umbætur sem virka! Við skoðum í leiðinni hvort núverandi hugbúnaður og verkfæri henta rekstrinum.
Sjá nánar →ISO-vottun og kröfuhæfni
Þarftu vottun? Á eftir Afburðakerfinu bætast ISO 9001, 14001, 45001 eða 27001 við sem tagg — ekki sem aukakerfi. Lean, mean og brot af verði Big 4 ráðgjafa.
Sjá nánar →Ég vinn ekki ein.
Ég kem með aðferðina — og traust samstarfsnet fyrir verkfærin, vottunina og leiðtogaþroskann.
Verkfæri og kerfi
Óháð ráðgjöf um nýtískuleg verkfæri og hvernig á að fækka kerfum og minnka flækjustig.
Vottun og kröfuhæfni
Reynsla af mörgum vottunaraðilum — ég bendi þér á þann rétta þegar tíminn kemur.
Leiðtogahæfni og þroski
Samstarf við jógaþerapista og sérfræðing í innri þróun - því menningin breytist ekki nema leiðtoginn geri það líka.
Frítt sjálfsmat
Fáðu skýra mynd af stöðunni á örfáum mínútum. Engin skuldbinding, engin söluræða - aðeins gagnleg innsýn.
Fá tilboð
Langar þig að vita hvað hentar þínu fyrirtæki? Fylltu út stutt form og fáðu sérsniðið tilboð innan 48 klukkustunda.
Hafa samband
Ertu með spurningu eða langar að ræða möguleikana? Sendu okkur línu – við svörum yfirleitt innan eins virks dags.