VERTU MEÐ
Lifandi stjórnkerfi — Afburðakerfið í hugbúnaði
Afburðastjórnun  /  Lifandi stjórnkerfi
Hugbúnaður & innleiðing

Frá skjalaskelfingu inn í lifandi kerfi sem fólk vill nota.

Afburðakerfið þarf ekki að lifa í skúffu eða dreift í allskonar misgóðum hugbúnaði. Ég hjálpa þér að færa það í eitt einfalt, stafrænt kerfi svo stefna, ábyrgð, verkefni og mál lifa á einum stað.

Umbreytingin

Fjögur kerfi verða eitt.

Flest fyrirtæki „eiga" nú þegar stjórnunkerfi. En það lifir ekki á einum stað stefnur í SharePoint, leiðbeiningar í Confluence, verkefni í Jira, tími í Tímon, frávik í tölvupósti. Hver hluti virkar fyrir sig, en enginn með yfirsýn yfir heildina. Umbreytingin er ekki „settu upp nýtt kerfi" - hún er að taka það sem þú ert þegar með, skipuleggja það eftir 7 F-stoðum Afburðakerfisins, og færa það í eitt lifandi, einfalt og skilvirkt kerfi.

Stefnur & skjölSharePoint
LeiðbeiningarConfluence
VerkefniJira / Excel
Tími & fjarvistirTímon
Frávik & ábendingarTölvupóstur
skipulagt eftir 7 F-stoðum

Eitt lifandi kerfi

byggt á Afburðakerfinu
  • Framtíð - stefna
  • Forysta - ábyrgð
  • Ferli - verklag
  • Fólk - hæfni
  • Félagar - hagsmunaaðilar
  • Framfarir - umbætur
  • Frammistaða - KPI
  • Yfirsýn - á einum skjá
Virðið frá degi eitt

Hvað lifandi afburðakerfi gefur þér.

Ekkert af þessu krefst vottunar. Þetta er skýrleikinn og afburðastjórnunin sem fyrirtæki fær um leið og aðferðafræðin fer í kerfið - hvort sem vottun kemur seinna eða aldrei.

Skýr stefna sem allir sjá

Stefnan er ekki í skúffu framkvæmdastjóra heldur lifandi í kerfinu. með eiganda og endurskoðunartíðni.

Knowledge Base

Dreifð en skýr ábyrgð

Hver veit hvað hann á. Ekkert „ég hélt þú værir með þetta" - hlutverk, ábyrgð og skipurit á einum stað.

Members · Org Chart

Frávik falla ekki milli skips og bryggju

Mál og frávik eru skráð, rakin og leyst - ekki gleymd í tölvupósti. Lærdómurinn skilar sér.

Operations · Cases

Verkefni með verkþætti og eiganda

Ekki bara minnismiðar í Slack. Verkefni hafa stöðu, ábyrgð og heildaryfirlit með uppfærða stöðu - og tímaskráningu á verkþætti ef það hentar.

Projects

Tími sem tengist vinnunni

Ekki bara fyrir launakerfið, heldur innsýn í hvar tíminn er notaður, tengt verkefnum og málum.

Time Tracking

Yfirsýn á einum stað

Stjórnendur sér stöðu rekstrarins á rauntíma, og starfsfólk með yfirsýn á sín mál og verkefni - minnkar áreiti og óþarfa fundi. Og þegar vottun á við er allt þegar til staðar.

Dashboard
Verkfærið sem hýsir kerfið

Krafta - íslenskt kerfi sem Afburðakerfið getur lifað í.

Þegar fyrirtæki er tilbúið fyrir kerfislega lausn mæli ég með Krafta — íslensku stjórnunarkerfi sem sameinar beiðnir, verkefni, tíma og ferla í einu flæði. Það er ekki nauðsynlegt, en frábær valkostur þegar það á við.

Ég er ekki eigandi eða starfsmaður hjá Krafta - ég er óháður ráðgjafi. Þú kaupir áskriftina beint hjá Krafta; ég sé um aðferðafræðina, uppsetninguna og að kerfið verði raunverulega notað. Önnur kerfi virka líka: Notion, Confluence eða gamla góða skjalasafnið. Lausnin fylgir þér, ekki verkfærinu.

„Sumir þurfa skilvirkara upplýsingakerfi. Aðrir þurfa skýrleika fyrst. Báðir hafa rétt fyrir sér."

Skoða Krafta.is →

Ég sé um

Aðferðafræðin
  • Afburðakerfið - 7 F-stoðir
  • Uppsetning og sniðmát
  • Þjálfun og innleiðing
  • Eftirfylgni og umbætur

Krafta sér um

Kerfið
  • Hugbúnaðinn sjálfan
  • Hýsingu og viðhald
  • Áskrift og notendaumsjón
  • Tæknilegt support
Tveir sjálfstæðir aðilar með skýr mörk og sameiginlegt markmið - ekkert Microsoft-lockin, ekkert flækjustig - hýsing í næsta nágrenni
Mín aðkoma

Þrjú skref inn í kerfið.

Þú getur byrjað þar sem hentar þér - vinnustofu sem opnar samtalið, innleiðingu sem einfaldar og bætir, eða reglulega eftirfylgni sem heldur því lifandi.

1
Inngangur

Vinnustofur & námskeið

Við kortleggjum stöðuna og einföldum áður en nokkuð fer í kerfi. Fræðsla og samtal sem opnar dyrnar.

  • Afburðagreiningin - staðan á 7 F-stoðum
  • Einföldun & rafvæðing stjórnkerfis
  • Námskeið og fyrirlestrar fyrir teymi
2
Kjarni

Innleiðing í kerfið

Ég byggi grunnkerfið upp - stefnu, ferla, verkefni og frávik - í Krafta sem ég mæli með eða því kerfi sem hentar þér.

  • Grunnpakki: gæði & verkefnastjórnun
  • ISO 9001 · 14001 · 45001 · 27001 þegar við á
  • Sérpakkar: HACCP, ÍST 85, VAKINN
3
Hjarta rekstrarins

Eftirfylgni

Kerfið helst lifandi og þróast með fyrirtækinu. Fyrir þá sem vilja byggja menningu umbóta, ekki bara klára verkefni.

  • Mánaðarleg eftirfylgni og rýni
  • Gæðastjóri til leigu
  • Innri úttektir og vottunarundirbúningur
Ertu nú þegar með Afburðakerfið?

Uppfærðu stjórnkerfið þitt úr skjölum í hugbúnað.

Ef þú hefur þegar byggt upp aðferðafræðina - á pappír, í Excel eða í möppum, þá er næsta skref að færa hana í lifandi og nútímalegt upplýsingakerfi. Ég sé um flutninginn svo ekkert glatast og allt verður aðgengilegt á einum stað.

Fá tilboð →
Þú lýsir stöðunni - ég sendi tillögu að verkþáttum og verði. Engin skuldbinding.

Hvar viltu byrja —
sjálfsmati, tilboði eða samtali?

Taktu frítt sjálfsmat og sjáðu hvar fyrirtækið stendur á 7 F-stoðum - eða lýstu stöðunni og fáðu tillögu að verkþáttum og verði. Ekkert af þessu er skuldbindandi.

frá skjalaskelfingu → lifandi kerfi