Frá skjalaskelfingu
í lifandi kerfi.
Stefnur í SharePoint, verkefni í Excel, frávik í tölvupósti, þekkingin í höfðinu á starfsfólkinu. Hvert verkfæri virkar eitt og sér, en erfitt að sjá yfirsýnina.. og þegar starfsfólk hættir tapast þekking. Við kortleggjum núverandi stöðu, óskastöðu og hjálpum til við að skilgreina næstu skref, allt á þínum forsendum!.
Fjögur kerfi. Enginn sér heildina.
Þið borgið fyrir mörg verkfæri en vantar samt yfirsýn. Vandinn er sjaldnast fólkið - heldur ramminn.
Flest fyrirtæki „eiga" nú þegar stjórnunarkerfi. Það lifir bara ekki á einum stað - það er dreift á milli verkfæra sem tala ekki saman. Þetta er skjalaskelfingin.
Þið eruð að velta fyrir ykkur einföldum á stjórnunarkerfinu, hugmyndinni um sjálfvirknivæðingu og „eitt kerfi", en vitið ekki hvar þið standið, hverju ætti að breyta, eða hvort það borgi sig yfir höfuð.
Þessar vinnustofur svara því. Þið sjáið allt verkfæralandslagið ykkar á einum stað, rýnið í hvernig krítísk flæði fara í gegnum mörg skref og kerfi.. og hvernig er hægt að einfalda. Þið farið út með skýrari mynd - og hvaða skref væri skynsamlegt að taka, eða ekki taka!
Frá ringulreið að skýrleika.
Gagnvirk vinna með stjórnendum, þar sem heildarmyndin verður loksins skýr.
Þið sjáið heildarmyndina
Hvaða verkfæri eru að hjálpa? Hver eru að flækja málin og hvað vantar?
Þannig týnist tíminn
Við skoðum mikilvæg vinnuflæði og sjáum hvar tími, gæði og gögn tapast á milli kerfa.
Betri tíð
Sama flæði, með færri hnökrum - hvernig er hægt að einfalda og minnka óþarfa vinnu?
Þið vitið næsta skref
Skýr forgangsröðun á því hverju ætti að breyta fyrst. Í Premium fáið þið það sem áþreifanlega innleiðingaráætlun.
Mörg kerfi verða eitt.
Takið það sem þið eruð þegar með, skipuleggið það eftir stoðum Afburðakerfisins, og færið það í eitt lifandi kerfi.
Tvær vinnustofur, tvær útkomur.
Sami kjarni - verkfærakort og flæðis-greining. Basic svarar „við viljum vita meira" og Premium fer í dýptina með greiningu og áþreifanlegri innleiðingaráætlun.
- Verkfærakort - hvar rekstur, gæðastjórnun og verkefnastjórnun lifa í dag
- Eitt flæði skoðað saman
- Er eitt kerfi raunhæft - hvernig?
- Skýr mynd af stöðunni og næstu umbótaskref
- Allt í Basic, dýpra
- Kortlagning af mikilvægu flæði sem sýnir sóun og ROI-greiningu
- Sérsniðin innleiðingaráætlun
- Skýrsla með góðum ráðum fyrir einfaldara og árangursríkara stjórnunarkerfi
Næsta skref eftir báðar vinnustofur: Breytið og bætið sjálf eða fáið nákvæmt tilboð fyrir nánari ráðgjöf og/eða innleiðingaráætlun, sérsniðið að ykkar rekstri.
Premium: þið farið út með innleiðingaráætlun.
Áþreifanlega afurðin sem fylgir Premium aðgreinir hana frá kynningarfundi - undirbúningur, nánari greining á vinnustofunni, skýrsla innan 5 daga.
Yfirsýn, A3-áætlun
- Verkfærakortið - öll verkfærin í notkun núna, með sársaukastuðli
- Krítískt flæði - skref fyrir skref, með sóunar-punktum
- Leiðin til einföldunar - hvað og hvernig, í hvaða röð
- Prentað, klárt að hengja upp á vegg!
Skýrslan
- Verkfæralandslagið í dag - hvað lifir hvar, og hvað það kostar
- Flæðis-greining með ROI-mati á tímasparnaði
- Innleiðingaráætlun - hvað á að bæta fyrst, flytja, eyða, halda..? Og í hvaða röð?
- Hægt að nýta áfram með eða án ráðgjafa
Hugbúnaðarsalar sýna þér kerfið sitt og vona að þú kaupir. Stórir ráðgjafar selja margra vikna úttekt sem endar í PowerPoint. Hvorugur byrjar á því sem þú átt nú þegar.
Þessar vinnustofur byrja á þínum veruleika - verkfærunum sem þú notar í dag - og teikna leiðina þaðan. Þú ferð ekki út með kerfi sem þú átt að laga þig að, heldur skýra mynd af þinni eigin leið í átt að einföldun. Kerfið sér um reksturinn, verkefnin og tímann; ég byggi gæða- og stjórnkerfið ofan á - með þekkingargreinum, ferlum, stefnum og sniðmátum, svo gæði og ISO verða aukaafurð, ekki sérkerfi. Aðferðafræðin er kerfis-óháð: Krafta þegar það á við, Notion, Confluence.. lausnin fylgir þér, ekki verkfærinu.
Sjáðu hvar þið standið —
áður en þið ákveðið nokkuð.
Taktu frítt stafrænt sjálfsmat og sjáðu hvar upplýsingarnar ykkar lifa í dag - eða lýstu núverandi og fáðu tilboð sniðið að ykkar rekstri. Ekkert af þessu felur í sér áframhaldandi skuldbindingar.