EINS DAGS STJÓRNENDAFUNDUR

Afburðagreiningin

Þegar tíminn er kominn til að skoða hvernig stjórnunarkerfið virkar í alvöru — ekki bara á pappír. Á einum degi skoðum við sjö afburðastoðir kerfisins þíns og finnum nákvæmlega hvar hvar styrkir og veikleikar liggja - og hver eru næstu skref. 

Sjá verð og innihald
Senda fyrirspurn

 7 

afburðastoðir á einum degi

 3

fasar - undirbúningur, vinnustofa, skýrsla. 

20 

ár á mörkum stefnu og framkvæmdar

Vandinn er ekki fólkið. Vandinn er ramminn.

Flest fyrirtæki eru með stjórnunarkerfi. Þau vita það bara ekki. Það birtist svona:

  • Verkefni dragast — enginn á niðurstöðuna
  • Ábyrgð safnast hjá fáum — flöskuhálsar skapast
  • Fundir enda í umræðu, ekki ákvörðunum
  • ISO kerfið lifir sínu eigin lífi, aðskilið frá rekstri
  • Skipurit breytist — áskoranirnar ekki

Greining á öllum sjö stoðum stjórnunarins - á einum degi

Afburðagreiningin er eins dags vinnustofan þar sem við förum í gegnum sjö F-stoðir Afburðakerfisins. Við skoðum hvar kerfið þitt stendur í dag, hvar árekstrarnir eru, og hvað þarf að breytast.

Niðurstaðan er ekki nýtt skipurit. Heldur skýr mynd og forgangslisti — ásamt flottri skýrslu sem þið getið unnið eftir.

Oft leiðir þessi greining til frekari samstarfs — en hún stendur einnig sjálfstæð sem mikilvægt reset fyrir stjórnendateymið.

Grunnurinn

Sjö F — sjö stoðir kerfisins

Á vinnustofunni förum við í gegnum hverja stoð og finnum út hvar ykkar kerfi stendur.

01
F
Framtíð Skýr tilgangur, sýn og markmið sem leiða ákvarðanir
02
F
Forysta Ábyrgð, umboð og sameiginleg stjórnendastaða
03
F
Ferli Einföld og skilgreind ferli með raunverulegu eignarhaldi
04
F
Fólk Skýr hlutverk og valddreifing sem minnkar flöskuhálsa
05
F
Félagar Samræmt samstarf við lykilhagsmunaaðila
06
F
Framfarir Kerfisbundið umbótastarf — ekki slökkvilið
07
F
Frammistaða Mælingar og markmið sem styðja stefnu og árangur

Grunnurinn að kerfinu

Kerfið er ekki getgáta.
Það er byggt á því sem rannsóknirnar sanna.

Sjö F-stoðirnar byggja á áratuga rannsóknum heimsins bestu stjórnunarsérfræðinga — þýddum yfir á íslenskan veruleika.

EFQM Shingo Toyota Jim Collins Simon Sinek Laloux

"Kerfið er ekki getgáta. Það er byggt á því sem rannsóknirnar sanna."

Agnes Hólm Gunnarsdóttir — höfundur Afburðastjórnunar og Afburðaárangurs

Uppbygging dagsins

Dagskrá vinnustofunnar

Skipulagður dagur með skýrum niðurstöðum. Við notum Miro sem lifandi vinnusvæði.

Undirbúningur: Survey til allra þátttakenda + 30 mín símtal við tengilið — áður en við mætum.

9:00
Framtíð & ForystaHvert ætlum við? Hvernig er forystan skipulögð og ábyrgðin dreifð?
10:00
Ferli & FólkHvar safnast ákvarðanir upp? Hvar er vald óljóst eða vantar umboð?
11:30
Félagar & FramfarirHverjir eru lykilhagsmunaaðilar og hvernig er umbótastarf skipulagt?
14:00
FrammistaðaMælingar sem máli skipta — ekki bara fyrir úttektir og skýrslur.
15:00
Ákvarðanir & næstu skrefForgangslisti, stopp-listi og skýr vegvísir. Dagurinn endar með áætlun.

Niðurstaðan

Hvað fær þú úr þessum degi?

Miro vinnusvæði

Lifandi mynd af öllum sjö stoðunum — þið eigið þetta og getið unnið eftir því áfram.

Forgangslisti

3–5 skýrar ákvarðanir og aðgerðir. Og stopp-listi — hvað á að hætta að gera.

Ákvörðunarrammi

Skýrt yfirlit á hvar vald er, hvar það þarf að dreifa sig og hvar það þarf að vera miðlægt.

Samantektarskýrsla

Flott PDF skýrsla afhent innan viku — með niðurstöðum, tillögum og næstu skrefum.

Eitt verð. Engin óvissa.

Afburðagreiningin er pakkaþjónusta — þú borgar fyrir niðurstöðuna, ekki tímana. Innifalið er undirbúningur, vinnustofan og skýrslan.

Fyrir minni fyrirtæki eða þá sem vilja byrja smærra er líka hægt að fara í styttri útgáfu — Afburðagreiningin Lite — sem er hálfsdagur án Miro og styttri samantekt.

AFBURÐAGREININGIN 

Undirbúningur + vinnustofa + skýrsla

490.000 kr + VSK
  • Stutt könnun til stjórnenda
  • 30 mín undirbúningssamtal
  • Heill vinnustofudagur með Agnesi
  • Miro borð — lifandi og þitt eigið
  • Forgangslisti og stopp-listi
  • PDF samantektarskýrsla
  • Tveggja vikna follow-up

Margir viðskiptavinir okkar byrja hér — og velja síðan fulla innleiðingu í gegnum Afburðakerfið. Greiningin er fyrsta skrefið inn í heildræna umbreytingu.

Skoða Afburðakerfið →

Tilbúinn/n að skoða
hvernig kerfið virkar í alvöru?

Ekkert kynningarsamtal nauðsynlegt. Sendu mér bara línu og við finnum út hvort þetta passar.

Sendu mér línu Eða bóka samtal

Hafðu samband!

Ekki hika við að spyrja spurninga, óska eftir kynningarspjalli eða biðja um tilboð. Þú færð svar innan 48 klst.

Við sendum ekki ruslpósta.