ISO & Kröfuhæfni

Kröfurnar eru raunverulegar.
Flækjan þarf ekki að vera það.

Við skoðum hvar kerfið þitt stendur í dag — og byggjum skýra leið að vottun eða endurvottun án þess að drukkna í skjölum.

Þrjár lausnir. Ein áhersla.

Skýrleiki í stað flækju — ISO, Vakinn eða önnur vottun sem hluti af stjórnuninni, ekki hliðarverkefni.

① ISO 9001

Gæði í reynd,
ekki á pappír

Kerfi sem fólk notar - ekki til að sýna úttektarmanni.

② ISO 21500

Verkefnastjórnun sem virkar í daglegum rekstri

Skýr ábyrgð og rammi — þannig að breytingar fara úr orðum í verk.

③ Samþætt stjórnkerfi

Hættu að gera sömu vinnuna tvisvar

Margar vottanir — eitt kerfi. Minni tvíverknaður, skýrari rekstur.

① ISO 9001 — Gæði í raun, ekki á pappír

Mörg fyrirtæki með ISO 9001 vottun eru með skjöl sem enginn les og ferla sem enginn fylgir. Vottunarárið er stressandi. Á milli vottana gleymist allt.

Þetta þarf ekki að vera svona.

ISO 9001 á að vera lýsing á því hvernig fyrirtækið virkar í raun - ekki samhliða kerfi sem nær aðeins upp á yfirborðið þegar úttektarmaðurinn mætir.

Við hjálpum þér að:

  • Losa þig við óþarfa.
  • Skjala það sem þarf - ekkert umfram.
  • Fá vottun eða endurnýja hana með einföldun og skilvirkni í fyrirrúmi.

✔ Hentar fyrir bæði frumvottun og endurvottun
✔ Kerfi sem fólk notar

② ISO 21500 — Verkefnastjórnun & breytingar

Fyrir þau sem eru þreytt á að reksturinn og verkefnin keppi um sömu auðlindir.

ISO 21500 gefur þér sameiginlegt tungumál og ramma fyrir verkefnastjórnun — þannig að breytingar fara úr orðum í verk.

Við hjálpum þér að:

  • Skýra ábyrgð og forgang þegar rekstur og verkefni rekast á
  • Setja upp einfaldan ramma sem allir skilja
  • Tengja verkefnastjórnun við daglegan rekstur

✔ Hentar fyrirtækjum þar sem margt er í gangi á sama tíma

✔ Skýrt eignarhald og betri framkvæmd

✔ Minni eltingaleikur - betra flæði

③ Samþætt stjórnkerfi — ISO + ISO

Fyrir þau sem eru að reka tvö eða fleiri kerfi — og finna að það er of mikil vinna.

Mörg fyrirtæki innleiða ISO staðla hvern fyrir sig og enda með tvöfalda vinnu, tvöfaldar skrár og allskonar óþarfa rugling. Samþætt stjórnkerfi sameinar kröfurnar í eitt - einfaldara, skýrara og sjálfbærara.

Við hjálpum þér að:

  • Kortleggja hvað er sameiginlegt milli staðlanna
  • Fjarlægja tvíverknað
  • Byggja eitt kerfi sem þjónar rekstrinum - ekki öfugt

✔ Hentar þeim sem eru með t.d. 9001 + 27001, eða 9001 + 14001 + 45001
✔ Minni viðhaldskostnaður á kerfum
✔ Eitt samræmt kerfi

Hvernig virkar þetta?

Þetta er ekki hefðbundin ISO ráðgjöf.

1

Spurningalisti + spjall

Tengiliður færð sendan spurningalista til að fylla út. Svo ræðum við saman - og áttum okkur á hvar flækjan er.

2

Skjala- og gagnaskoðun

Við skoðum hvað er til — ferlar, skrár, vottanir, skjöl. Ekki til að gagnrýna heldur til að skilja hvað virkar og hvað er óþarfi.

3

Roadmap + skýrsla

Þið fáið skýra stöðumynd, forgangsröðun og grófa áætlun fyrir næstu 3–12 mánuði. Á mannamáli.

4

Kynning fyrir stjórnendur

Við kynnum niðurstöður og ræðum næstu skref - með þeim sem þurfa að taka ákvarðanirnar. Á mannamáli, ekki ISO-tungumáli.

Verð

Readiness & Roadmap greining

Spurningalisti + skjalayfirferð + roadmap + kynning fyrir stjórnendur

650.000 kr

+ VSK

Skýr staða — þið vitið hvar þið standið

Raunhæfur forgangur — hvað fyrst, hvað seinna

Framkvæmanleg áætlun — ekki bara skjal sem safnar ryki

Traustur grunnur fyrir innleiðingu eða umbreytingu

Sendu mér línu →