🌸 Vor námsskeið 2026 — takmarkað pláss 🌸
Skapandi skipulag · Vor 2026

Vor í lofti —
sumarið mitt!

Þú ákveður hvernig þitt sumar verður.
Ekki tilviljunin. Ekki allt hitt.

Þú.

Stutt og hnitmiðað námskeið fyrir uppteknar konur sem vilja meiri ró, betri yfirsýn og skipulag sem virkar í daglegu lífi.

Já — þetta er fyrir mig! 12.900 kr  ·  Þú færð strax aðgang nbsp;·  Þín að eilífu
3 hlutar
Video + templates
PDF og Google útgáfa
Þú færð strax aðgang
☕Mælt með góðum kaffibolla og glimmerpenna við höndina ✨

Join The Challenge Now! 

We can't wait to see you.  

Hljómar þetta kunnuglega?

Árið heldur áfram — og áður en þú veist af er sumarið líka liðið hjá.

Þú byrjaðir árið með góðan ásetning. Kannski jafnvel skýra sýn. Svo tók lífið við. Núna er sumarið á næsta leyti — og þú ert ennþá þreytt, með litla yfirsýn og of margt í gangi í einu.

Þetta ert ekki bara þú. Og þetta snýst ekki um viljastyrk. Þig vantar ekki meira að gera. Þig vantar einfaldara skipulag sem styður þig.

01

Listarnir taka yfir

Þú ert dugleg að halda utan um allt – skrifa niður, skipuleggja og muna. En einhvern veginn kemst það sem skiptir þig mestu máli alltaf aftar í röðina. Dagarnir fyllast… en þú færð ekki alveg tilfinninguna fyrir að vera á réttum stað..

02

Árið líður hratt

Þú byrjaðir með góðan ásetning. Kannski jafnvel skýra sýn. En svo tók lífið við – og hlutirnir færðust smám saman til hliðar. Markmiðin eru ekki horfin… þau eru bara ekki lengur í forgrunni.

03

Tíminn þinn

Þú vilt vera til staðar – fyrir verkefnin, fólkið og allt sem skiptir máli. En á þínum eigin forsendum. Vandinn er ekki viljinn. Heldur að rýmið fyrir þig sjálfa hefur ekki fengið að vera skýrt.

Námsskeiðið

Þrír hlutar.
Ein breyting.

Við tökum okkur augnablik — áður en sumarið tekur yfir — og skoðum saman hvernig þú vilt að dagarnir þínir líti út. Á þínum forsendum. Í þínum takti.

01
Fyrsti hluti

Hvar er ég núna?

Við byrjum á lífshjólinu — hvernig gengur árið raunverulega? Engin dómur, bara skýrleiki. Þú sérð myndina af því sem er að ganga vel og hvað þarf að breytast.

02
Annar hluti

Hvað vil ég?

Ikigai-aðferðin — hvað gefur þér orku? Við setjum raunhæf markmið og lærum að segja nei við það sem þjónar þér ekki. Þetta er þar sem sumarið byrjar að verða þitt.

03
Þriðji hluti

Kerfið mitt

Þú færð templates — bæði prentanlegar PDF og Google útgáfur — og við setjum upp vikulega rútínu sem virkar þegar lífið er annasamt. Hér kemur skipulagið sem raunverulega heldur.

🎁
Bónus

Auðlindir og niðurhal

Allar templates á einum stað. PDF og Google útgáfur. Þín að eilífu — þú kemur alltaf aftur þegar þú þarft.

Þetta fylgir með

Allt sem þú þarft —
ekkert óþarft.

🎥

Videos

Stuttar fokusaðar lexíur. Þú getur horft þegar þér hentar — í morgunmat, á hléi, í sófanum.

📄

Templates — PDF

Prentaðu út og fylltu í með glimmerpenna. Lífshjólið, markmið, vikulegt skipulag.

💻

Templates — Google

Sama kerfi á skjá. Virkar á iPad, farsíma og tölvu. Alltaf uppfært, alltaf aðgengilegt.

📓

Dagbók — upsell

Falleg A5 dagbók í hlýjum litum. Fullkominn félagi við námsskeiðið — alltaf með þér.

♾️

Ævarandi aðgangur

Þetta er þitt. Þú getur farið aftur í efnið hvenær sem þú vilt — á næsta ári, alltaf.

🌿

Á þínum hraða

Self-paced. Engar skuldbindingar. Byrjaðu í dag eða á sunnudag í rykkyrrð með kaffibolla.