VERTU MEÐ
Back to Main Blog

Guðmundur er ekki vandamálið

Sep 11, 2026

Svo dásamlega satt 🤓

Mér finnst við stundum vera ótrúlega fljót að horfa á fólkið þegar árangurinn er ekki eins og við viljum.

👉 Fækka starfsfólki.
👉 Skipta um stjórnanda.
👉 Færa kassana í skipuritinu.
👉 Bæta við nýju hlutverki.
👉 Segja fólki að forgangsraða betur og vinna aðeins „snjallara“.

Á meðan situr Guðmundur þarna. 😅

Guðmundur er duglegur. Vel liðinn. Vill gera vel. Hann reddar málunum, svarar öllum og kann kerfið utan að.

Hann er líka orðinn sérfræðingur í slökkvistarfi. 🔥

Hann eltir samþykktir, situr fundi, leitar að upplýsingum, býr til skýrslur sem enginn er alveg viss um hver les, leiðréttir mistök, svarar sömu spurningunni á þremur stöðum og finnur leiðir fram hjá ferlum sem virka ekki.

Og af því að Guðmundur er svona duglegur þá… gengur þetta einhvern veginn.

Þangað til það gerir það ekki.

Þá er freistandi að segja:
„Við þurfum meiri skilvirkni.“
„Fólk þarf að taka meiri ábyrgð.“
„Við þurfum að gera meira með minna.“

En hvað ef Guðmundur er alls ekki vandamálið?

Hvað ef við byrjuðum frekar á að skoða stjórnunarkerfið, ferlana, flæðið og virðið?

Hvar bíður vinnan?
Hvað erum við að gera sem skapar ekkert virði?
Hvar eru óþarfa samþykktir og handtök?
Hvar er ábyrgðin óskýr?
Af hverju þarf Guðmundur alltaf að redda þessu?
Og hvers vegna eru griljón yfirmenn í kringum hann? 😇

Þetta er ein af ástæðunum fyrir því að ég hef svona mikla ástríðu fyrir góðum stjórnunarkerfum og ferlum.

Þau eiga ekki að vera rykfallin skjöl, flóknar verklagsreglur eða box til að haka í.

Gott stjórnunarkerfi á að gera fólki auðveldara að vinna góða vinnu og skapa virði.

Svo áður en við biðjum Guðmund um að róa hraðar…

…kannski ættum við að laga lekann í bátnum. 🚣‍♂️🛠️

#ferlar #stjórnun #lean #stöðugarumbætur #stjórnunarkerfi

Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Cras sed sapien quam. Sed dapibus est id enim facilisis, at posuere turpis adipiscing. Quisque sit amet dui dui.

Call To Action

Stay connected with news and updates!

Join our mailing list to receive the latest news and updates from our team.
Don't worry, your information will not be shared.

We hate SPAM. We will never sell your information, for any reason.