1. Skipuleggja
Draumajólin, markmiðin og fjárhagsáætlunin. Mánaðardagatöl fyrir jólaböll, tónleika og boð.
Afburðaskipulag · Jólin 2026
Fallegt, prentvænt jólaskipulag sem leiðir þig alla leið að aðfangadagskvöldi. Íslenskar hefðir, tómar síður fyrir þína eigin lista og nóg pláss fyrir það sem skiptir þig mestu máli.
Þrjár útgáfur, ein fyrir hvers konar jól.
A4 · prentvænt · PDF strax eftir kaup · eftir Agnesi Hólm
Listinn sem lengist. Gjafirnar sem gleymast. Smákökurnar sem áttu að vera sjö sortir og jólaballið sem lendir á sama kvöldi og tónleikarnir.
Og allt í einu er komin Þorláksmessa.
Jólaskipulagið tekur ringulreiðina úr höfðinu og setur hana á blað,
svo þú getir notið aðventunnar í stað þess að hlaupa í gegnum hana.
Og við tökum frí frá skjánum í leiðinni.
Þrjú skref, eitt í einu.
Draumajólin, markmiðin og fjárhagsáætlunin. Mánaðardagatöl fyrir jólaböll, tónleika og boð.
Vikuyfirlit, gjafalistar, jólamaturinn, smákökuplanið og innkaupalistar. Lítil verkefni á hverjum degi í stað þess að allt lendi á síðustu vikunni.
Aðfangadagurinn á blaði, minningar ársins, föndur og spil. Og að minnsta kosti einn dagur á aðventunni án nokkurra verkefna.
Seint af stað? Það er aldrei of seint að eiga góð jól. Hvert skipulag byrjar á síðunni Byrjaðu hér sem sýnir þér hraðleiðina, hvað skiptir mestu máli og hvað má bíða.
Hvað hentar þér í ár?
Fyrir alla fjölskylduna · 105 síður
Fyrir fjölskyldur með lítil börn · 72 síður
Fyrir þig, í friði og ró · 69 síður
Fjölskyldujólin okkar + Jólasveinarnir koma!
Fullorðna skipulagið og barnagleðin saman.
Þú sparar 1.490 kr.
Öll þrjú skipulögin
Fyrir þig og fjölskylduna.
Þú sparar 2.480 kr.
Nokkrar af 240 skipulagssíðum.
Flestar jólaskipulagsbækur eru á erlendu tungumáli og með erlendum hefðum. Þetta er það ekki. Hér eru jólasveinarnir okkar þrettán, skórinn í glugganum, laufabrauðið og jólabókaflóðið, ekki þakkargjörðarhátíð og sokkar á arinhillunni.
Dagsetningarnar passa við íslenska desember, frá fyrsta sunnudegi í aðventu til þrettándans.
Strax eftir kaup færðu tölvupóst með aðgangi þar sem þú hleður niður PDF skjalinu. Þú prentar heima eða í næstu prentþjónustu.
Fjölskyldujólin okkar er heildarskipulag fyrir heimilið. Jólasveinarnir koma! er fyrir heimili með lítil börn sem setja skóinn út í glugga. Jólin mín í ró er fyrir þau sem halda jóliahátíðna að mestu í einrúmi, eða vilja leggja áherslu á sjálfsmildi og umhyggju þetta árið. Margar fjölskyldur taka Fjölskyldupakkann og fá bæði fullorðna skipulagið og jólasveinana.
Allar síður eru A4 á hvítum grunni og prentast vel á venjulegum heimilisprentara. Þú getur prentað allt skipulagið eða bara þær síður sem þú þarft.
Já. Í hverju skipulagi eru tómar síður sem þú getur prentað aftur og aftur fyrir þitt heimili, og fyllt út með þínum eigin listum og markmiðum.
Skipulagið er fyrst og fremst hannað til að prenta, en PDF skjalið má líka opna í glósuforritum eins og GoodNotes eða Notability og skrifa í það með penna.
Alls ekki. Síðan Byrjaðu hér sýnir þér hraðleiðina: hvað skiptir mestu máli núna og hvað má bíða eða sleppa.
Skipulagið er fyrir þitt heimili. Ef vinkona heillast, sendu henni frekar hlekkinn hingað. Hver sala gerir mér kleift að halda áfram að skapa fallegt skipulag.
Hæ, ég er Agnes
Ég heiti Agnes Hólm og bý til Afburðaskipulag, skipulag sem fylgir árstíðunum og lífinu eins og það er. Jólin eru uppáhaldstíminn minn, en ég veit líka hvað desember getur orðið þéttur og í ótal mörg horn að líta.
Þess vegna bjó ég til jólaskipulagið sem hentar mér og ég nota sjálf: fallegt, íslenskt og nógu sveigjanlegt fyrir allt sem fylgir aðventunni og undirbúningi hennar ❤️🎄
Með hlýrri jólakveðju,
Agnes Hólm
Lítil jólagjöf til þín
Allur desember á einu blaði, jólasveinarnir merktir á sínum dögum og merkimiðar á pakkana í kaupbæti. Algjörlega ókeypis, þú prentar bara heima.
Gefðu þér jól þar sem þú nýtur, í stað þess að hlaupa.