Haustnámskeið · opnar strax eftir kaup
Nýtt blað — Haustið mitt 🍂
Stutt og hnitmiðað námskeið fyrir uppteknar konur sem vilja taka stjórnina á haustinu sínu — með meiri ró og minna samviskubiti.
Þrír hlutar · 10 stuttar lexíur · 5 sniðmát sem þú prentar eða fyllir út stafrænt
Ég ætla að byrja — 3.900 kr.Kynningarverð til miðvikudagskvölds 2. september. Fullt verð 12.900 kr. eftir það.
Kannastu við þetta?
- Þú ert búin að kaupa dagbók — kannski tvær — og skrifaðir í hana í tíu daga.
- Skólinn er byrjaður, tómstundirnar komnar á fullt og vikan hleypur á undan þér.
- Þú veist alveg hvað þú vilt gera í haust. Það kemst bara aldrei inn í dagatalið.
- Á sunnudagskvöldum finnst þér þú vera á eftir áður en vikan er einu sinni byrjuð.
Vandinn er ekki að þig vanti aga. Þig vantar kerfi sem þolir að lífið fari úrskeiðis.
Þetta gerum við saman
Þrjú einföld skref. Þú kemst í gegnum þau á einu kvöldi — eða þremur, eins og þér hentar.
1. Hvar er ég núna?
Lífshjólið og heiðarlegt yfirlit yfir árið sem er liðið. Engin dómharka — bara skýrleiki um hvar þú stendur í dag.
2. Hvað vil ég?
Ikigai, markmið sem skipta raunverulega máli — og æfingin sem flestar sleppa: að velja hverju þú segir nei við.
3. Kerfið mitt
Stafrænu skjölin, vikuhrynjandinn og 20 mínútna endursetningin sem heldur öllu saman þegar vikan riðlast.
Hvað færðu?
Námskeiðið
- 10 stuttar lexíur í þremur hlutum — lesnar á kvöldi, unnar á þínum hraða
- Kaflinn „Þegar allt fer úrskeiðis“ — leiðin til baka þegar þú dettur út úr taktinum, því það gerist
- Ótímabundinn aðgangur — líka þegar þú vilt byrja upp á nýtt í janúar
Sniðmátin fimm
- Lífshjólið mitt
- Ikigai og markmiðin mín
- Stafræna kerfið mitt
- Vikuhrynjandinn minn
- Endurræsing — leiðin mín til baka
Prentvæn og til stafrænnar útfyllingar. Þú mátt nota þau aftur og aftur, hvert haust.
Hver er ég?
Ég heiti Agnes Hólm Gunnarsdóttir. Ég er iðnaðarverkfræðingur (M.Sc.), IPMA C vottaður verkefnastjóri og höfundur tveggja bóka um stjórnun. Ég hef kennt skipulag og stjórnun við Háskólann í Reykjavík og hjálpað fyrirtækjum að byggja kerfi sem halda.
Þetta námskeið er nákvæmlega sama hugsun — bara í mannlegri stærð. Fyrir eitt líf, eina viku og eina konu sem vill hafa það aðeins betra í haust. 🤎
Kynningarverð fyrstu skólavikuna
3.900 kr. 12.900 kr.
Tilboðið gildir til miðvikudagskvölds 2. september. Eftir það fer námskeiðið á fullt verð.
Eingreiðsla · aðgangur opnast strax · ótímabundinn aðgangur
Ég ætla að taka haustið mitt í gegnAlgengar spurningar
Hvað tekur þetta langan tíma?
Ég er ekki með neitt kerfi í dag — er þetta of mikið fyrir mig?
Ég hef prófað svona áður og gefist upp.
Hvernig er efnið sett fram?
Hvenær fæ ég aðgang?
Haustið er nýtt blað 🍂
Þú þarft ekki að gera þetta fullkomlega. Bara að mæta.
Já, ég er með — 3.900 kr.